Evrópusamtök neytenda BEUC, hafa sent kvörtun til Evrópuráðsins vegna TikTok sem er sérstaklega vinsæll samskiptamiðill hjá börnum og unglingum. Eru evrópskar persónuverndarstofnanir hvattar til að rannsaka háttsemi þessa samskiptamiðlarisa.

BEUC segir í erindi sínu til Evrópuráðsins að TikTok brjóti ýmis lög á sviði neytendaréttar. Þannig séu skilmálar ósanngjarnir og óskýrir, en TikTok áskilur sér rétt til að nota, dreifa og endurútgefa myndbönd án greiðslu. TikTok tryggir ekki að að réttindi barna og unglinga séu tryggð hvað varðar villandi og dulda markaðssetningu. Meðferð persónuverndarupplýsinga TikTok þykja vafasamar og upplýsingar til notenda miðast ekki við að aðalnotendahópurinn séu börn og unglingar. Þá eru vísbendingar um að TikTok láti hjá líðast að tryggja vernd gegn skaðlegu efni. Ekki er langt síðan 10 ára gömul stúlka lést á Ítalíu eftir að hafa tekið þátt í yfirliðsáskorun „blackout challenge“ á TikTok. Ítölsk stjórnvöld gripu til aðgerða í framhaldinu og hafa tímabundið bannað TikTok að heimila börnum aðgang nema geta tryggt með fullnægjandi hætti að viðkomandi sé ekki yngri en 13 ára.

Neytendasamtökin taka þátt í átaki BEUC og skora á Persónuvernd og Neytendastofu að taka mál TikTok til alvarlegrar skoðunar.

Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna segir stafræn réttindi afar mikilvæg og nauðsynlegt að standa vörð um þau. „Að okkar mati eru margir skilmálar TikTok ósanngjarnir og óljósir. TikTok beinir duldum auglýsingum að börnum og unglingum og notar þau nánast til auglýsingagerðar. Þannig eru notendur hvattir til að búa til efni og nota myllumerki með tilteknum vörumerkjum.“ 

Breki bendir ennfremur á að stafræna byltingin feli í sér mikil tækifæri fyrir neytendur, en jafnframt áskoranir. „Börn og unglingar eru sérstaklega viðkvæmur hópur sem ber að vernda. Öflug neytendavernd er forsenda þess að hægt sé að standa vörð um og efla réttindi neytenda samhliða tæknibreytingum. Það er von okkar að Evrópuráðið, Neytendastofa og Persónuvernd láti málið til sín taka og standi vörð um stafræn réttindi okkar.“

Sjá meira um átakið á www.beuc.eu/tiktok

Grindr sektað

Tik Tok er ekki eini samskiptamiðilinn sem er undir smásjánni um þessar mundir. Eins og komið hefur fram í fréttum hefur stefnumótaforritinu Grindr verið gert að greiða sekt að upphæð 10 milljón evrur (u.þ.b. einn og hálfur milljarður íslenskra króna) fyrir að brjóta gegn evrópskum persónuverndarlögum. Þetta er niðurstaða Persónuverndar í Noregi „Datatilsynet“ sem tók málið til skoðunar eftir kvörtun norsku neytendasamtakanna, Forbrukerrådet. Grindr var fundið sekt um að hafa safnað og deilt viðkvæmum persónuupplýsingum til þriðja aðila í markaðslegum tilgangi án þess að hafa til þess skýra heimild frá notendum.

Skoða á vef Neytendastofu