Á Bleika deginum eru landsmenn hvattir til að bera bleiku slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu. Bleika slaufan er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum.
Dagurinn er tilvalinn til hópeflis fyrir fyrirtæki eða hjá hópum og félagið hvetur til þess að fólk sendi skemmtilegar og bleikar myndir á bleikaslaufan@krabb.is sem birtar eru á Facebooksíðu Bleiku slaufunnar. Einnig er hægt að merkja myndir #bleikaslaufan á samfélagsmiðlum.
Í netverslun Krabbameinsfélagsins er hægt að kaupa Bleiku slaufuna og þar er einnig fjölbreytt og skemmtilegt úrval gjafavara. Allur ágóði af sölu vara rennur til Krabbameinsfélagsins.