Húnaþing vestra auglýsir eftir aðilum til að stunda vetrarveiðar á ref

Áhugasamir skili inn umsóknum þar um á skrifstofu Húnaþings vestra.

Svæðin verða sex:

Vatnsnes, Vesturhóp, Miðfjörður, Víðidalur, Hrútafjörður austan og Hrútafjörður vestan og verður einn aðili ráðinn á hvert svæði.

Í umsókn skal koma fram hvar umsækjandi ætlar að staðsetja skothús og stunda veiðarnar.

Ef umsækjandi ætlar að stunda veiðarnar utan eigin landareignar skal skriflegt leyfi landeigenda fylgja umsókninni.

Húnaþing vestra gerir skriflega samninga við þá veiðimenn sem fá úthlutuðu leyfi til vetrarveiða á ref. Í þeim samningi mun m.a. koma fram að kr. 8.000.- verða greiddar fyrir hvert unnið dýr, að hámarki 17 dýr á hverju svæði.

Skilyrði leyfisveitingar er að umsækjandi hafi gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af Umhverfisstofnun. Tekið er fram að einungis þeim er veitt verður leyfi til vetrarveiða á ref verður greitt fyrir unnin dýr.

Skriflegum og undirrituðum umsóknum um vetrarveiði á ref skal skila á skrifstofu Húnaþings vestra eigi síðar en 1. nóvember 2022.

Sveitarstjóri.

Mynd/pixabay