Málefni háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins eiga erindi um land allt og mun ráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, staðsetja skrifstofu sína víðs vegar um landið á kjörtímabilinu. Á hverri starfsstöð verður ráðherra með opna viðtalstíma þar sem öll áhugasöm eru velkomin í stutt, milliliðalaust spjall um málefni á borði háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins. Þá verða fyrirtækjaheimsóknir einnig hluti af dagskrá ráðherra.

„Hugmyndin kviknaði þegar ég var að hugsa hvernig ráðuneyti sem væri búið til árið 2022 myndi starfa. Með þessu kynnist ég enn betur starfsemi sem tengist ráðuneytinu um allt land og fæ tækifæri til að prófa að starfa annars staðar en í Reykjavík,“ segir ráðherra. 

Staðsetningar skrifstofu ráðherra vorið 2023:

  • Borgarbyggð – miðvikudagur 11. janúar – Opinn viðtalstími á B59 Hótel í Borgarnesi kl. 15:00-16:00. 
  • Kópavogur – mánudagur 30. janúar
  • Rangárþing eystra – 23. febrúar
  • Grindavík – fimmtudagur 2. mars
  • Fjarðabyggð – föstudagur 17. mars
  • Fjallabyggð – þriðjudagur 28. mars
  • Hornafjörður – mánudagur 17. apríl
  • Vesturbyggð – fimmtudagur 27. apríl
  • Húnaþing vestra – miðvikudagur 10. maí
  • Skagafjörður – fimmtudagur 11. maí 
  • Norðurþing – mánudagur 29. maí

Staðsetningar skrifstofu ráðherra seinni hluta árs 2023 verða auglýstar síðar. Vinsamlega athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar á dagskrá ráðherra.

Frá því að nýtt háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti tók til starfa í febrúar hefur ráðuneytið verið opið fyrir störfum óháð staðsetningu. Í því felst að starfsemi ráðuneytisins er ekki bundin við einn ákveðin stað þrátt fyrir að aðalstarfsstöð þess sé staðsett í Reykjavík. Þannig geta starfsmenn ráðuneytisins unnið að heiman eða frá þeim stað á landinu sem best hentar hverju sinni. Ráðherra er þar engin undantekning og með því að staðsetja skrifstofu ráðherra um víðs vegar um landið gefst mikilvægt tækifæri til aukinnar tengslamyndunar og samstarfs við háskóla, stofnanir, fyrirtæki, sveitarfélög og einstaklinga um land allt.

Ráðherra hefur nú þegar staðsett skrifstofu sína í 10 mismunandi sveitarfélögum um land allt, en haustið 2022 vann ráðherra frá Snæfellsbæ, Mosfellsbæ, Árborg, Hafnarfirði, Akureyri, Reykjanesbæ, Ísafirði, Vestmannaeyjum, Akranesi og Múlaþingi.

Nánari upplýsingar á hvin.is


Mynd: stjornarradid.is