Fundur bæjarstjórnar 15.12.2022

Ég vil byrja á því að þakka fulltrúum allra flokka hér, forstöðumönnum hjá Fjallabyggð,  og ekki síst deildarstjóra stjórnsýslu og fjármála, fyrir mikla og góða vinnu við gerð fjárhagsáætlunar. Það að koma saman fjárhagsáætlun er ekki einfalt verk, óvissuþættirnir margir og fjölmörg verkefni sem þarf að horfa til varðandi forgangsröðun fjármuna. Því var einstaklega ánægjulegt við alla þessa vinnu að finna hve samstaðan var mikil meðal bæjarfulltrúa, hvort sem þeir tilheyrðu minnihluta eða meirihluta, um að gera sitt allra besta bæjarfélaginu til hagsbóta. Samstarfið í gegnum allt vinnuferlið hefur verið einstaklega gott og vinnufundir og nefndarfundir skilað góðum árangri.

Fjárhagsáætlun ársins er leiðarljós okkar sem berum ábyrgð á rekstri sveitarfélagsins og grundvöllur þess að viðeigandi fjárheimildir séu til staðar til að rekstur Fjallabyggðar gangi eðlilega fyrir sig. Það er mikilvægt að það sé öflugt og skilvirkt eftirlit til staðar með framkvæmd fjárhagsáætlunar hverju sinni og að til sé ábyrgt vinnulag til að bregðast við óvæntum breytingum í ytra umhverfi sem og breytingum sem verða í rekstri sem leiða til frávika.

Sú fjárhagsáætlun sem hér er lögð fram sýnir að aðhalds verður gætt í rekstri á komandi ári og grunnur lagður að enn frekari uppbyggingu á komandi árum á margvíslegum sviðum. Það er fagnaðarefni hve staða Fjallabyggðar er sterk, skuldir litlar og innviðir öflugir.

 Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar

Áætlað er að rekstrarafkoma bæjarsjóðs fyrir árið 2023 verði jákvæð um 126 millj.kr.
Rekstrarafkoma samstæðunnar, fyrir afskriftir og fjármagnsliði, er áætluð jákvæð um 219 millj.kr.
Útsvarsprósentan helst óbreytt á milli ára, þ.e. 14.48%
Skatttekjur ársins 2023 eru áætlaðar 1.748 millj.kr. en útkomuspá ársins 2022 er 1.541 millj.kr.
Heildartekjur A- og B-hluta 2023 verða 3.888 millj.kr. en eru áætlaðar 3.736 millj.kr. í útgönguspá ársins 2022.
Rekstrargjöld A- og B-hluta vegna ársins 2023 eru áætluð 3.492 millj.kr. en eru 3.142 millj.kr. fyrir árið 2022.
Heildareignir sveitarfélagsins eru áætlaðar 6.705 millj. kr. og eigið fé er 4.416 millj.kr. eða 65,9% eiginfjárhlutfall.
Skuldaviðmið A-hluta bæjarsjóðs skv. reglugerð 502/2012 er áætlað 25,6% fyrir árið 2023.
Vaxtaberandi langtímaskuldir árið 2023 eru áætlaðar 91,7 milljónir, en verða 112,5 milljónir í árslok 2022.
Veltufé frá rekstri samstæðunnar er áætlað 614 millj. kr. sem eru 15,8% af heildartekjum.
Handbært fé í árslok 2023 er áætlað 562 millj.kr.
Almennt munu gjaldskrár hækka um 7% á næsta ári, en nýjasta þjóðhagsspá gerir ráð fyrir 8,2% verðbólgu árið 2023 þannig að hækkanir á  gjaldskrám eru lægri en spáð verðbólga.

 Framkvæmdir og viðhald eigna

Á komandi ári er áætlað að fjárfestingar nemi 308 milljónum og verða þær fjármagnaðar með handbæru fé.

Farið verður í framkvæmdir við nýja viðbyggingu við húsnæði Grunnskóla Fjallabyggðar í Ólafsfirði. Næsta haust mun starf nemenda í 5. bekk flytjast í starfsstöð grunnskólans í Ólafsfirði þannig að frá þeim tíma mun miðstigið vera sameinað. Bætt verður verulega í  tölvuvæðingu á unglingastigi með kaupum á chromebookvélum fyrir nemendur.

Einnig verður lagt fjármagn í bætt umferðaröryggi og ásýnd Aðalgötu í Ólafsfirði.

Það er ánægjulegt að verið sé að fara í framkvæmdir varðandi íbúðarhúsnæði í báðum bæjarkjörnum. Tvö einbýlishús eru í byggingu í Bakkabyggð í Ólafsfirði og búið er að úthluta 7 einbýlishúsalóðum til viðbótar þar. Á gamla malarvellinum á Siglufirði hefur öllum lóðum verið úthlutað, fyrir allt að 27 íbúðir og gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist næsta vor. Nú er unnið að undirbúningi gatnagerðar á malarvellinum. Einnig er búið að úthluta lóðum fyrir 10 íbúðir við Eyrarflöt á Siglufirði í par- og raðhúsum. Því sjáum við fram á langþráða uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í báðum bæjarkjörnum.

Ný geislatæki til hreinsunar á vatni verða sett upp við Múla- og Hvanneyrarlind auk þess verður unnið að úrbótum á eftirlitskerfi dælubrunna í holræsakerfi bæjarins.

Áfram verður haldið með endurnýjun götulýsingar með LED-væðingu. Eins verða miklar framkvæmdir á nýju ári við endurnýjun gangstétta og gerð nýrra göngustíga.

Í fjárhagsáætlun 2023 er gert ráð fyrir stórauknu fé, eða tæplega 150 milljónum, til viðhalds mannvirkja enda er mikil uppsöfnuð viðhaldsþörf mannvirkja í bæjarfélaginu. Til samanburðar fóru 114 milljónir til viðhalds á árinu 2022.

Gjaldskrárbreytingar

Það er virkilega ánægjulegt að greina frá ákveðnum lækkunum á gjaldskrám bæjarins til að mæta þeim álögum sem fasteignaeigendur verða fyrir samhliða hækkun á fasteignamati á landinu öllu. Þannig mun fasteignaskattur og lóðaleiguprósenta lækka um 5%. Auk þess mun holræsa-/fráveitugjaldaprósenta lækka úr 0,29% í 0,275%

Vatnsskattsprósenta fasteigna lækkar úr 0,29% í 0,275%
Þjónustugjöld hækka um 7 %
Aukinn afsláttur verður veittur af fasteignaskatti til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega.
Einnig verður komið til móts við eldri borgara og öryrkja með hækkun tekjuviðmiða um 14% að meðaltali vegna afsláttar á fasteignaskatti.

Ný lög um meðhöndlun úrgangs, sem kalla á breytta gjaldskrá, taka gildi á næsta ári. Þar sem lögum samkvæmt mega bæjarfélög ekki niðurgreiða kostnað við meðhöndlun úrgangs. Sorphirðugjöld hækka því úr kr. 47.340 – í kr. 51.600.

Ýmis verkefni

Hvað varðar ýmis önnur verkefni er vert að nefna að fjárframlög til menningatengdra verkefna eru talsvert aukin og er það vel.

Hjá Fjallabyggð höfum við haft þá venju að auglýsa eftir styrkjum í fjóra styrkflokka þ.e. styrki til fræðslumála, styrki til menningartengdra verkefna, rekstrarstyrki til safna og setra og styrki til hátíðarhalda. Að þessu sinni var einnig auglýst eftir styrkjum í nýjan styrkjaflokk sk. græna styrki. Skilyrði styrkveitinga úr þessum flokki eru að þau verkefni sem styrkt eru nýtist samfélaginu í Fjallabyggð og séu til þess fallin t.d. að bæta umhverfið, að draga úr orkunotkun, mengun eða losun gróðurhúsalofttegunda og /eða bæta ástand og útlit opinna svæða eða fólkvanga innan sveitarfélagsins.

Fjöldi góðra umsókn barst í alla þessa styrkjaflokka og verður úthlutun tilkynnt í byrjun næsta árs.

Bæjarstjórn hefur samþykkt sérstakan stuðning við starfsmenn Leikskóla Fjallabyggðar sem eru jafnframt í námi i leikskólafræði í viðleitni til að fjölga kennurum með sérhæfingu í leikskólafræði til framtíðar. Það er ósk mín að fólk með einlægan áhuga á þessu starfi muni nýta sér þann myndarlega stuðning sem í boði er til að sækja sér menntun í leikskólafræði og verða framtíðarstarfsmenn hjá Leikskóla Fjallabyggðar.

Þá hefur bæjarstjórn samþykkt veglegt fjárframlag eða 30 milljónir króna á næstu 5 árum til kaupa á nýju björgunarskipi í stað gamla Sigurvins sem nú er 34 ára. Með kaupum á nýju og öflugra björgunarskipi er betur verið að tryggja öryggi sjófarenda og styrkja björgunarsvæði á hafsvæðinu úti fyrir Norðurlandi. Björgunarbátajóður Siglufjarðar mun eiga og reka skipið

Það hefur verið góður skóli fyrir mig sem nýr bæjarstjóri Fjallabyggðar að fara í gegnum það ferli sem fjárhagsáætlunargerðin er. Það er mitt mat að þessi áætlun sé unnin af vandvirkni og  endurspegli ábyrgan rekstur og rétta forgangsröðun. Fjárhagsáætlunin 2023 sem og þriggja ára áætlun bæjarfélagsins renna styrkum stoðum undir enn frekari uppbyggingu hér í Fjallabyggð og það eru góð tíðindi að íbúum í Fjallabyggð hefur fjölgað um 13 á árinu og vonandi sjáum við fram á enn frekari fjölgun, því hér er svo sannarlega gott að búa.

Að lokum vil ég þakka starfsfólki Fjallabyggðar fyrir óeigingjarnt starf í þágu sveitarfélagsins og bæjarstjórn allri fyrir traust og gott samstarf á árinu sem nú fer senn að renna sitt skeið á enda.

Ég vil að lokum óska bæjarfulltrúum og fjölskyldum þeirra, starfsfólki bæjarins og öllum íbúum Fjallabyggðar gleðiríkrar jólahátíðar.

Megi komandi ár verða ykkur öllum hamingjuríkt og farsælt.

Sigríður Ingvarsdóttir, bæjarstjóri.

Mynd/Fjallabyggð