Tjaldsvæðið við höfnina á Siglufirði hefur nú verið opnað og tekið á móti fyrstu gestum sumarsins. Um er að ræða vinsælt og vel búið svæði með aðgengi að salernum, sturtum, þvottavél og rafmagni.
Tjaldsvæðin Rammalóðin og Stóri boli verða opnuð síðar, um leið og aðstæður og veður leyfa.
Í sumar hefur verið tekin í notkun ný bókunarþjónusta í gegnum Parka, sem gerir gestum kleift að bóka stæði fyrir tjöld, húsbíla og vagna með einföldum hætti á netinu.
Sjá nánar á facebooksíðu tjaldsvæðis Siglufjarðar.
Mynd/Tjaldsvæði Siglufjarðar