Á vordögum voru skilgreind nokkur verkefni sem nýtast ferðaþjónustunni á svæðinu, en SSNV kallaði eftir hugmyndum að verkefnum seinni partinn í mars s.l. Hér er um að ræða verkefni, sem flest geta talist til innviða inn í framtíðina bæði sem áþreifanlegum, en einkum stafrænna, þar sem þeir síðarnefndu nýtast í kynningu svæðisins nú strax í sumar.
Þessa dagana er verið að hefjast handa við átak hnitsetningu gönguleiða á Norðurlandi vestra og þar er af nógu að taka, því sennilega er hátt í eitt hundrað styttri og lengri gönguleiðir uppgefnar á því kortaefni, sem gefið hefur verið út um svæðið á liðnum árum. Hluti af sveitarfélögunum hafa tekið fyrstu skref með nokkrar af þessum gönguleiðum, en nú stendur til að bæta hressilega í, þannig að sem flestar af þessum gönguleiðum verði í framtíðinni aðgengileg í tölvum og snjalltækjum. Það eru sumarstarfskraftar, sem voru ráðnir af SSNV og Akrahreppi í átaki Vinnumálastofnunar, sem munu sjá um hina verklegu framkvæmd. Eins og fyrr segir er af nógu að taka varðandi gönguleiðir á svæðinu og ef einhverja gönguhópa eða einstaklinga langar að leggja verkefninu lið á ferðum sínum, hvetjum við viðkomandi að vera í sambandi.
Nýlega fóru í loftið á samfélagsmiðlum fyrstu landslagsmyndbönd með frumsaminni tónlist úr smiðju Helga Sæmundar Guðmundssonar og er óhætt að segja að byrjunin lofi verulega góðu. “Norðvestur”-verkefnið mun standa yfir í allt sumar og myndefnið að því loknu vera tiltækt í framtíðarnotkun fyrir kynningarefni svæðisins.
Svipaða sögu má segja af því efni sem N4-sjónvarpsstöðin er að taka upp og verður á næstunni notað í þáttunum “Uppskrift að góðum degi á Norðurlandi vestra”, en fyrsti þátturinn fór einmitt í loftið á dögunum og þrír munu fylgja í kjölfarið.
Þá er einnig í undirbúningi verkefni, sem miðar að hönnun og uppsetningu skilta m.a. á stöðum sem tengjast þekktum persónum. Hugmyndin er að þetta verkefni verði hluti af heildrænni nálgun á merkingum og/eða uppsetningu á skiltum á ferðamannastöðum, ásamt því að vera samtvinnað öðru upplýsingaefni þeim tengdum.
Öll eru þessi verkefni fjármögnuð sem átaksverkefni úr sérstakri úthlutun Sóknaráætlunar Norðurlands vestra vegna Covid 19.
Af ssnv.is