Á fundi byggðaráðs Dalvíkurbyggðar þann 31. júlí sl. gerði sveitarstjóri grein fyrir fundi sem hún átti með starfsfólki Vegagerðarinnar þann 16. júlí sl.
Á fundinum með Vegagerðinni kom meðal annars fram að búið er að fresta framkvæmdum á Svarfaðardalsvegi (805) frá Tunguvegi að Göngustöðum. Gert er ráð fyrir rannsóknum á og í kringum veginn í ár og hönnun fari fram árið 2027. Framkvæmdir eru fyrirhugaðar á árunum 2028-2029, með fyrirvara um fjárveitingar.
Eftirfarandi er bókun byggðaráðs:
Byggðaráð lýsir yfir miklum vonbrigðum með þá tilkynningu Vegagerðarinnar, að framkvæmdir við Svarfaðardalsveg sem áttu að hefjast á næsta ári seinki um tvö ár. Það er hörmulegt að standa frammi fyrir þessari ákvörðun, þrátt fyrir ítrekaðar kvartanir á undanförnum árum á skorti á viðhaldi á þessum vegi, skorti á bundnu slitlagi sem og lélegum gæðum á því efni sem notað er við viðhald. Í október 2023 gaf SSNE út Samgöngu- og innviðastefnu Norðurlands eystra, þar kemur fram að Svarfaðardalsvegur er einn umferðarmesti malarvegurinn í landshlutanum. Í Svarfaðardal eru öflug bú sem þurfa þjónustu, það vinna margir utan býlis, íbúar þurfa að sækja þjónustu s.s. leik- og grunnskóla til Dalvíkur ásamt því að ferðaþjónustan fer vaxandi. Allt þetta hefur kallað á vegabætur í mörg undanfarin ár.
Mynd/Dalvíkurbyggð