Listakonan Chiara Gambirasio heldur fyrirlestur og opna vinnustofu í Herhúsinu á Siglufirði í dag, föstudaginn 27. mars klukkan 17:00.
Gambirasio kom til Íslands með það að markmiði að rannsaka ljósbrot og „elta regnboga“, en við komuna til Siglufjarðar tók við allt önnur upplifun þegar snjór og vetraraðstæður mótuðu umhverfi hennar. Aðstæður urðu til þess að íshellir myndaðist í kringum vinnustofu hennar og veðurbreytingar höfðu áhrif á sköpunarferlið.
Í kyrrðinni innandyra, á meðan veðrið tók stöðugum breytingum utandyra, þróaði hún verk sem hún nefnir „Meteopathetic málverk“, þar sem veður og umhverfi leika lykilhlutverk í listsköpuninni.
Dagskráin hefst með fyrirlestri frá klukkan 17:00 til 17:30, þar sem listakonan kynnir verkefni sitt og hugmyndafræði. Í kjölfarið gefst gestum kostur á að taka þátt í sameiginlegri upplifun tengdri veðrinu, en jafnframt verður boðið upp á léttan fordrykk.
Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir.
Að lokinni dagskrá í Herhúsinu verður haldið áfram með drykkjar- og teiknikvöld í Segli 67 brugghúsinu.




