Cornflakesnammi með rúsínum

  • 1/2 dl sykur
  • 125 g suðusúkkulaði
  • 1/2 dl sýróp
  • smá salt
  • 1 msk kakó
  • 50 g smjör
  • 1/2 dl rúsínur
  • 5-6 dl cornflakes

Setjið allt nema Cornflakes og rúsínur í pott. Blandið vel saman, látið suðuna koma upp og sjóðið við vægan hita í um 5 mínútur. Takið pottinn af hitanum og hrærið rúsínum og Cornflakes varlega saman við.

Setjið í lítil form og látið harðna í ísskáp.

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit