Síðastliðinn föstudag kom út nýtt lag með Countess Malaise. Lagið nefnist Exciting og er aðgengilegt á öllum helstu streymisveitum.

Um Countess Malaise

Dýrfinna Benita er rappari sem hefur komið fram undir alter egóinu Countess Malaise. Hún hefur unnið með mörgum öðrum listamönnum, þar á meðal hljómsveitinni CYBER og Lord Pusswhip.

Hún sendi frá sér plötuna HYSTERÍA í október í fyrra sem inniheldur 8 lög, öll samin af Dýrfinnu og aðallega pródúseruð af Lord Pusswhip, ásamt Mutant Joe og Zgjim á tveimur lögum. 

Dýrfinna hefur aldrei farið troðnar slóðir í tónlistar- og listsköpun, og ber platan þess sérstaklega merki.

Coverið á plötunni er mynd af henni þar sem búið er að maska út kynfæri og geirvörtur en það minnir á það þegar fólk lendir í síunni á samfélagsmiðlum þar sem þessir líkamspartar sjást, þó ekki sé í kynferðislegum tilgangi og er sett í bann í framhaldi.

Lagið á Spotify