Árleg hunda- og kattahreinsun fer fram í Dalvíkurbyggð dagana 21. og 24. október 2019, frá kl.16:00 – 18:00 báða dagana.

Kattahreinsun fer fram mánudaginn 21. október.

 Hundahreinsun fer fram fimmtudaginn 24. október.

 Samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins um hunda- og kattahald er eigendum skylt að örmerkja dýrin, samhliða hreinsuninni verður boðið upp á, gegn gjaldi, að örmerkja þau dýr sem ekki hafa verið örmerkt.
Framvísa þarf kvittun fyrir greiðslu leyfisgjalda.

Hreinsun fer fram í áhaldahúsi Hitaveitu Dalvíkur við Sandskeið. Hunda- og kattaeigendum er skylt að mæta með hunda og ketti sína til hreinsunar. Ef hreinsun hefur þegar farið fram eru eigendur vinsamlegast beðnir um að koma í áhaldahús og framvísa vottorði því til staðfestingar.

Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs.