Gildistími samkomulags Fjallabyggðar við Menningar- og fræðslunefnd slökkviliðsins í Ólafsfirði um framkvæmd 17. júní hátíðarhalda er liðinn.

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar leggur til að auglýst verði eftir aðila/aðilum til að hafa umsjón með skipulagningu og framkvæmd hátíðarhalda á 17. júní.

Með umsókn fylgi greinargerð með drögum að dagskrá hátíðarinnar og kostnaðaráætlun. Nefndin vísar drögum að auglýsingu til bæjarráðs til umfjöllunar og afgreiðslu.

Vísað til umsagnar og afgreiðslu bæjarráðs.