Sjómannadagurinn er fyrsti sunnudagurinn í júní ár hvert, nema ef hvítasunnu ber upp á þann dag, þá er hann næsti sunnudagur þar á eftir.
Hann er hátíðisdagur allra sjómanna. Dagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur þann 6. júní árið 1938 í Reykjavík og á Ísafirði, frá upphafi 20. aldar tíðkaðist að halda sérstakar sjómannamessur í kirkjum áður en þilskipin héldu til veiða eftir vetrarlægi, sem var yfirleitt 3. eða 4. sunnudag eftir þrettánda.
Árið 1987 var dagurinn lögskipaður frídagur sjómanna.
Í Fjallabyggð er haldið upp á sjómannadaginn í Ólafsfirði með glæsilegri dagskrá alla helgina. Á Siglufirði verður blómsveigur lagður á minnisvarða um týnda og drukknaða sjómenn.
Sjómannadagurinn á Siglufirði var í eina tíð líflegur og mikið um dýrðir. Hér má sjá nokkrar myndir sem Ásdís Gunnlaugsdóttir á í fórum sínum og eru þær teknar um eða eftir 1980 af hátíðarhöldunum á Siglufirði.