Hr. Eydís kynnir nýja ábreiðu af laginu „Kyrie“ með Mr. Mister, lagi sem hljómsveitin hefur haft á óskalista sínum allt frá upphafi.
Í upphafi lagsins er sungið „Kýrie eléison“, sem er á grísku (Κύριε, ελέησον) og þýðir „Drottinn, miskunna þú oss“. Orðin eiga sér djúpar rætur í kirkjulegri hefð, en þrátt fyrir trúarlegan uppruna þeirra hafa meðlimir Mr. Mister ítrekað tekið fram að lagið sé ekki trúarlegt í eðli sínu. Frasinn var fremur valinn vegna þess að hann þótti dularfullur og táknrænn og hljómaði eins og einhvers konar sameiginlegt ákall um von, leit og leiðsögn.
Kyrie kom fyrst út rétt fyrir jólin 1985 og fór á topp bandaríska vinsældalistans í mars 1986. Lagið er af plötunni Welcome to the Real World, sem einnig innihélt Broken Wings, annan stórsmell sveitarinnar. Lagið hefur síðan fest sig í sessi sem eitt af einkennandi pop-lögum ’80s tímabilsins, bæði fyrir melódíska uppbyggingu og dramatískt andrúmsloft.
„Kyrie er eitt af þessum lögum sem við vissum alltaf að við myndum taka. Lagið byrjar á rólegum nótum en kemur síðan inn af miklum krafti með sterku og grípandi viðlagi. Okkur fannst mikilvægt að gera því rétt skil og bíða með það þar til við vorum tilbúnir,“ segir Örlygur Smári, gítarleikari og söngvari Hr. Eydís.
Ábreiðan heldur í dramatík og hljóðheim upprunalega lagsins, með skýrum tilvísunum í níunda áratuginn.
Hlekkur á ábreiðuna: https://youtu.be/Vn5jSgW6i8w
YouTube: https://www.youtube.com/@eydisband
Facebook: Hr. Eydís (hreydisband)
Instagram: @eydisband
TikTok: @eydisband
