Fjarðargangan fór fram í dag á Ólafsfirði við ágætar aðstæður, þó veðrið hefði mátt vera betra. Alls voru 83 keppendur skráðir til leiks í hinum ýmsu vegalengdum og gekk mótahald vel. Í ár var jafnframt fagnað 40 ára afmæli göngunnar sem fyrst var haldin árið 1986.
Dagskráin var þétt og hófst snemma í morgun þegar afhending keppnisgögn voru afhent í Tjarnarborg. Barnagangan var ræst klukkan 10:30 og klukkan 11:00 fór sjálf Fjarðargangan af stað. Sundlaugin á Ólafsfirði opnaði klukkan 12:00 fyrir þá sem vildu láta þreytuna líða úr sér að lokinni göngu.
- Edda Vésteinsdóttir
- Kristján Hauksson
Úrslit voru kunngjörð nú fyrir stundu. Í 20 kílómetra göngu kvenna kom Edda Vésteinsdóttir fyrst í mark. Hjá körlum var það Kristján Hauksson sem bar sigur úr býtum í sömu vegalengd.
Öll úrslit mótsins má nálgast með því að smella hér.
Dagurinn var bæði hátíðlegur og fjölbreyttur þar sem 40 ára saga Fjarðargöngunnar var í heiðri höfð. Ljóst er að viðburðurinn á áfram sterka stöðu í bæjarlífinu og dregur að bæði keppendur og áhorfendur.
Meðfylgjandi eru myndir frá verðlaunafhendingunni.
Myndir: Facebook / Fjarðargangan.














