Í dag var undirritaður málefna- og samstarfssamningur B-lista Framsóknar- og félagshyggjufólks og D-lista Sjálfstæðisfélags Dalvíkurbyggðar og óháðra um meirihlutasamstarf í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar kjörtímabilið 2018-2022. Tekið er mið af stefnumálum beggja framboðanna í aðdragandasveitarstjórnarkosninganna 26.maí 2018.

Undirritunin fór fram í sól og blíðu að viðstöddum íbúum og starfsfólki Dalbæjar

Lögð er áhersla á ábyrga og nútímalega stjórnunarhætti sem miða að því að laða fram það besta í samfélaginu. Lagt er upp með að allir kjörnir fulltrúar vinni sem ein
heild og sjónarmið allra séu virt og skoðuð.  Áhersla er á gott samstarf og samráð við starfsfólk sveitarfélagins.

Fjölgun íbúa er langtímamarkmið, að laða að nýtt fólk og halda í þann mannauð sem fyrir er. Umhverfismál og málefni Dalbæjar og eldri borgara verða áherslupunktar á kjörtímabilinu.

Áhersla er á gott samstarf og samráð við starfsfólk sveitarfélagins

Forseti sveitarstjórnar verður Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson D-lista, formaður byggðarráðs verður Jón Ingi Sveinsson B-lista og Katrín Sigurjónsdóttir oddviti B-lista verður sveitarstjóri

Oddvitar listanna þau Katrín Sigurjónsdóttir og Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson undirrituðu samstarfssamninginn við Dalbæ, heimili aldraðra í dag kl. 17 í sól og blíðu að viðstöddum íbúum og starfsfólki Dalbæjar. Málefnasamningurinn verður birtur eftir fyrsta fund sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar sem er áætlaður þann 11. júní nk.

Ánægja ríkir með samstarfið

Frétt og myndir: aðsent