Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara sem eru með skráða búsetu hér á landi eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 1. desember 2019.

Hlutfall erlendra ríkisborgara er afar breytilegt milli sveitarfélaga eða frá rúmum 44% niður í 1%  þó að jafnaði sé hlutfallið um 14% þegar horft er til allra sveitarfélaga.

Þegar horft er til landshluta þá er hæsta hlutfall íbúa með erlend ríkisfang á Suðurnesjum með 24% íbúa og Vestfirðir koma næst með 16% íbúa. Lægsta hlutfall íbúa með erlend ríkisfang er á Norðurlandi eystra eða 8%.

Hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara eru í Mýrdalshreppi. Alls eru  44% íbúa hreppsins með erlent ríkisfang. Þann 1. desember sl. 319 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu í Mýrdalshreppi af alls 717 íbúum hreppsins.

Næst hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Skaftárhreppi með 33% og Bláskógabyggð með 28%.

Það sveitafélag sem er með lægsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang er Svalbarðshreppur en einn íbúi hreppsins er með erlend ríkisfang í hreppnum sem gerir  rúmt 1% íbúa.

Heimild: Þjóðskrá Íslands