Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórana á Vestfjörðum, Vesturlandi, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra lýsa yfir óvissustigi Almannavarna i fyrrgreindum umdæmum, vegna veðurs sem framundan er.
Enn einu sinni ætlar lægð að heimsækja okkur hér á Íslandi og henni fylgja appelsínugular viðvaranir Veðurstofunnar. Sú fyrsta tekur gildi í klukkan 13:00 á morgun, laugardaginn 11. febrúar og sú síðasta fellur úr gildi aðfararnótt sunnudagsins – sjá www.vedur.is/vidvaranir
Samráðsfundur Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra með viðbragðsaðilum var haldinn í dag klukkan 16:00. Þar var farið yfir stöðuna og viðbragð á þeim svæðum þar sem veðurspá er slæm.
Samhæfingarstöð Almannavarna verður virkuð klukkan 12:00 á morgun.
Vegfarendur eru beðnir um að vera ekki á ferðinni að óþörfu á því svæði þar sem veðrið er verst. Miklar líkur eru á að veðrið muni hafa áhrif á samgöngur og líkur eru á fokstjóni og því er fólk beðið um að ganga frá lausum munum.
Varasamt verður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind að vera á ferðinni og nauðsynlegt er að tryggja lausamuni til að fyrirbyggja foktjón. Fólki bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.
Inn á www.umferdin.is er hægt að fylgjast með rauntímaupplýsingum um færð á vegum.