Hr. Eydís og Erna Hrönn hafa gefið út tónlistarmyndband við frumsamið lag sitt Maniac For Love. Lagið kom út á Spotify í síðustu viku en í myndbandinu er tekin meðvituð ákvörðun um að sleppa öllu umstangi og setja flutninginn sjálfan í algjöran forgrunn.
Myndbandið er hugsað eins og stúdíóupptaka þar sem nánd, orka og uppbygging lagsins fá að njóta sín. Enginn söguþráður og engin flókin framleiðsla….aðeins lagið, flutningurinn og stemningin sem byggist upp eftir því sem á líður.
„Við erum það ánægð með Maniac For Love að við vildum gera myndband sem styður við lagið frekar en að draga athyglina frá því. Myndbandið er náið og sýnir okkur Ernu Hrönn þegar við erum að syngja lagið inn í stúdíóinu mínu úti á Granda í Reykjavík. Þetta var einföld framleiðsla, en þeim mun meira hlegið og fíflast, enda skemmtum við okkur mjög vel við upptökurnar,“ segir Örlygur Smári úr Hr. Eydís.
Myndbandið var tekið upp í einni lotu í hljóðveri Örlygs Smára á Granda. Markmiðið var að fanga flutninginn eins hreinan og mögulegt var, fremur en að byggja upp hefðbundið sögu-myndband. Maniac For Love er frumsamið ’80s-innblásið arena rock-lag með gríðarstóru viðlagi, samið með stóra troðfulla tónleikahöll í huga og markar næsta skref hjá Hr. Eydís í átt að meira frumsömdu efni.
Myndbandið við Maniac For Love er aðgengilegt á YouTube:
Instagram: @eydisband
Facebook: Hr. Eydís (hreydisband)
TikTok: @eydisband
YouTube: @eydisband



