Í fundargerð frá 69. fundi Fræðslu- og frístundanefndar Fjallabyggðar sem haldinn var í Ráðhúsi Fjallabyggðar á Siglufirði 1. apríl 2019 er bókað meðal annars:

1. 1903043 – Opnir tímar í líkamsræktum íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar

Undir þessum lið sat Haukur Sigurðsson forstöðumaður íþróttamiðstöðva.

Fræðslu- og frístundanefnd fól forstöðumanni íþróttamiðstöðva að finna hentugan tíma og leiðbeinendur og leggja fyrir fræðslu- og frístundanefnd. Þá óskaði nefndin eftir umsögn félagsþjónustunnar um með hvaða hætti væri hægt að koma til móts við eldri borgara og öryrkja með leiðsögn í líkamsræktina. Niðurstaða forstöðumanns og félagsþjónustu liggur fyrir. Stefnt er að því að bjóða eldri borgurum leiðsögn í líkamsræktar íþróttamiðstöðva eftir páska, tvo tíma í viku, í tvær vikur. Tímarnir verða auglýstir þegar nær dregur. Þá er samþykkt að fresta opnum tímum og leiðsögn fyrir aðra en eldri borgara þar til næsta haust.

 

Heimild: fjallabyggd.is