Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk tilkynningu um að grunur væri um eld í vélarrúmi fiskibáts sem staddur var um 500 metra norður af Siglufjarðarhöfn laust fyrir klukkan eitt í nótt. Þrír voru um borð í bátnum.

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og áhöfn björgunarskipsins Sigurvins, frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, voru þegar í stað kölluð út á mesta forgangi.

Björgunarskipið fór frá Siglufirði örfáum mínútum síðar, tók fiskibátinn á síðuna og færði að bryggju á Siglufirði þar sem slökkviliðsmenn fóru um borð. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þá afturkölluð. Engan sakaði um borð í bátnum.

Þetta er í annað skipti á tæpum tveimur vikum sem slökkvilið Fjallabyggðar fær tilkynningu um að grunur sé um eld í borð um bát.

Myndir/ af facebooksíðu Landhelgisgæslunnar