Við álagningu fasteignagjalda í janúar 2025 var afsláttur á fasteignagjöldum til elli- og örorkulífeyrisþega reiknaður til bráðabirgða og miðað við tekjuárið 2023.
Innheimtudeild sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur nú endurskoðað afsláttinn með tilliti til tekna ársins 2024 á skattframtali 2025. Allir íbúar hafa fengið rafræna tilkynningu þess efnis inn á island.is. Miðað er við allar skattskyldar tekjur samkvæmt skammtframtali og sameiginlegar tekjur hjóna og samskattaðs sambýlisfólks.
Ef breyting á afslætti er jákvæð tala í tilkynningunni þá hefur myndast skuld, en ef fjárhæðin er neikvæð, er um inneign að ræða. Vakin er athygli á því að hafi öll fasteignagjöldin verið greidd að fullu, færist inneignin til eignar á viðskiptareikning viðkomandi hjá sveitarfélaginu. Breytingunni er annars dreift á gjalddaga fasteignagjalda frá 1. júlí – 1. nóvember nk.
Á heimasíðu sveitarfélagsins má nálgast reglur um afslátt til tekjulítilla elli- og örorkulífeyrisþega vegna fasteignagjalda 2025.
Ef einhverjar spurningar vakna, vinsamlegast hafið samband í síma 455-6000 eða með því að senda tölvupóst á netfangið innheimta@skagafjordur.is
Bent er á að búseturéttarhafar hjá Búhöldum hsf. og Húsnæðissamvinnufélagi Skagafjarðar fá afslátt sinn greiddan frá viðkomandi félagi.