Tveir jarðskjálftar af stærðinni 3,2 mældust tæpum þrjátíu kílómetrum norður af Siglufirði um klukkan sex í morgun.
Skjálftarnir nú eru átta kílómetrum norðar en skjálftahrinan sem varð á miðvikudag.
Sjá nánar: Snarpur jarðskjálfti á Siglufirði
Fram kemur á vef Veðurstofunnar að um tugur eftirskjálfta hafi mælst og sá stærsti þeirra var 2,7 að stærð.
Veðurstofunni hafa ekki borist neinar tilkynningar um að jarðskjálftarnir hafi fundist í byggð.