Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í síðasta mánuði samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var  1.144 og var upphæð viðskiptanna um 76,9 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu.

Þegar maí 2022 er borinn saman við apríl 2022 fjölgaði kaupsamningum um 28,3% og velta hækkaði um 14,6%. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði samningum um 29% á milli mánaða en velta hækkaði um 17,2%. 

AllsSérbýliFjölbýliAtvinnueignirSumarhúsAnnað
Heildarvelta í síðasta mánuði76.93519.12242.44714.161911297
Þar af höfuðborgarsvæðið56.50610.88933.45412.0596539
AllsSérbýliFjölbýliAtvinnueignirSumarhúsAnnað
Kaupsamningar í síðasta mánuði1144235751117329
Þar af höfuðborgarsvæðið667765246322

Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með þeim fyrirvara að ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til síðasta mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar í fasteignagátt Þjóðskrár