Átak Geðhjálpar „G vítamín“ stendur yfir allan þorra og snýst um að benda á lítil heilræði sem hver sem er getur nýtt sér.

Miðvikudaginn 10.febrúar verður gefinn aukaskammtur af G-Vítamíni. Þá fylgjum við heilræði dagsins sem er: Gleymdu þér“ og bjóðum í samstarfi við sveitarfélög frítt inn á valin söfn um allt land.

Endilega nýtið tækifærið, ef ekki á þeim degi, þá þegar hentar. Það er verðmætt að leyfa sér að gleyma sér.

Fjallabyggð tekur þátt með myndarlegum hætti:
Síldarminjasafn Íslands, Snorragata 10, Siglufirði. Opnunartími kl. 13-16
Saga-Fotografica, Ljósmyndasafn, Vetrarbraut 17, Siglufirði. Opnunatími kl. 16 – 18
Pálshús, Strandgötu 4, Ólafsfirði. Opnunartími kl. 14 – 17
Ljóðasetur Íslands, Túngata 5, Siglufirði. Opnunartími kl. 15 – 18
Kompan Alþýðuhúsinu, Þormóðsgötu  11-15, Siglufirði. Opnunartími kl. 14-17
Þjóðlagasetur, Norðurgata 1, Siglufirði. Tónleikar kl. 20.00-21.00. Flutt verður lifandi tónlist fyrir gesti. Fram koma m.a. Edda Björk Jónsdóttir og kvæðamenn úr Fjallabyggð. Boðið verður upp á kaffisopa og skoðunarferð um setrið.

Frekari upplýsingar um söfn sem taka þátt á gvitamin.is. Það þarf ekki að skrá sig til að fá aðgang að söfnunum. 

Viltu meira G-Vítamín?

Á gvitamin.is er hægt að skrá sig og fá heilræði dagsins send í tölvupósti allan þorra ásamt möguleika á fjöldanum öllum af geðbætandi vinningum sem dregnir eru út daglega.

Sjá einnig fréttatilkynningu frá Geðhjálp