Einn af hápunktum sumarsins hjá börnunum í Fjallabyggð er ævintýravika Ungmennafélagsins Glóa á Siglufirði.

Fyrri ævintýravikan í sumar er í fullum gangi og heilmikið um að vera fyrir börn fædd 2016 – 2018.

Gaman er að fylgjast með öllum þessum skemmtilegu ævintýrum í máli og myndum á facebooksíðu Umf. Glóa.

Seinni ævintýravikan fer fram í júlí fyrir árganga 2017 – 2019.

Mynd/Umf. Glói