Opnað hefur verið fyrir styrkumsóknir, innsendar ábendingar, tillögur og eða erindi árið 2025.

Umsóknarfresti lýkur á miðnætti þriðjudaginn 24. september 2024. Einungis er hægt að sækja um rafrænt inn á “Þjónustugátt” á heimasíðu Fjallabyggðar. 

Tekið er við umsóknum í eftirfarandi flokkum:

  • Erindi sem varða fjárhagsáætlanagerð (ábendingar frá íbúum)
  • Styrkir til greiðslu fasteignaskatts (félög/félagasamtök)
  • Styrkir til menningarmála
  • Styrkir til fræðslumála
  • Styrkir til reksturs safna og setra
  • Styrkir til hátíða og stærri viðburða