Fyrir tæpum mánuði hlupu nemendur Ólympíuhlaup ÍSÍ og sl. þriðjudag var komið að því að afhenda styrki sem söfnuðust með áheitum í hlaupinu. Nemendur Grunnskóla Fjallabyggðar hlupu samtals 715 kílómetra og söfnuðu  888.750 sem skiptust milli þriggja verðugra málefna hér í Fjallabyggð.

Helmingur upphæðarinnar rann í styrktarsjóð fyrir fjölskyldu Elvíru Maríu Sigurðardóttur og hinn helmingurinn skiptist á milli þeirra Sigurbjörns Boga Halldórssonar og Noah Maricato Lopes.

Sigurbjörn og Noah komu til að veita styrknum viðtöku ásamt Katrínu Unu systur Elvíru sem tók á móti styrknum fyrir hönd fjölskyldunnar. Styrkþegarnir buðu síðan nemendum upp á kökur í eftirrétt í hádeginu.

Sjá fleiri myndir frá afhendingunni: HÉR