Ertu með hús, íbúð eða annað viðeigandi húsnæðisúrræði fyrir flóttafólk á leið til Íslands sem er að flýja ástandið í Úkraínu? Ef svo er, endilega fylltu út eyðublaðið sem þú finnur á síðu Fjölmenningarsetursins og gegnum Ísland.is

Hér má finna slóð á síðu hjá Fjölmenningarsetri um húsnæði til leigu, húsnæði fyrir fólk á flótta frá Úkraínu. Þar getur fólk sem hefur samþykktar íbúðir, hús eða aðstöðu sett inn eignina og þar með látið vita að það sé tilbúið að leigja húsnæði sitt fyrir flóttamenn. Hvort sem það er í skamman tíma eða til lengri tíma.