Grunnskóli Fjallabyggðar sigraði Fjármálaleika árið 2022.

Um 800 nemendur í 32 grunnskólum víðsvegar á landinu tóku þátt, en mikil keppni var um efstu sætin.

  1. Grunnskóli Fjallabyggðar
  2. Eskifjarðarskóli
  3. Vogaskóli

Árgangar 10. bekkjar í þremur efstu sætunum fá peningaverðlaun auk þess sem sigurvegarinn, Grunnskóli Fjallabyggðar, mun tilnefna tvo nemendur til að taka þátt í rafrænni Evrópukeppni í fjármálalæsi sem fram fer 10. maí næstkomandi.

Nemendur í 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar gáfu helming peningaverðlauna sinna til barna í Úkraínu.