Frá 22. – 27. júní næstkomandi mun Aðalheiður S. Eysteinsdóttir fara hringferð um landið með 60 gjörninga í tilefni af sextugs afmæli sínu. Með í för verður úrval listafólks víða að sem bæði sér um sína eigin gjörninga og tekur þátt í gjörningum Aðalheiðar.

Eins og einhverjir muna hefur Aðalheiður haldið uppá stórafmæli sín með 40 sýningum á 40 dögum og 50 sýningum á 5 árum. Það er því í beinu framhaldi sem settir verða upp 60 gjörningar á 6 dögum.

Öll eru velkomin að slást í för á hvaða tímapunkti sem er og fylgjast með gjörningunum sem verða 10 talsins dag hvern. Hér að neðan er listi yfir það listafólk sem tekur þátt og dagskráin tímasett svo hægt sé að fylgjast með. Hægt er að sjá dagskrá og fylgjast með daglega á facebooksíðu Aðalheiðar https://www.facebook.com/profile.php?id=1136438846

Þátttakendur:

Aðalheiður S. Eysteinsdóttir og gestalistamenn:
→ Arna Guðný Valsdóttir
→ Ólöf Sigríður Valsdóttir
→ Aðalsteinn Þórsson
→ Þórir Hermann Óskarsson
→ Brák Jónsdóttir
→ Hrafnhildur Ýr Denche Vilbertsdóttir
→ Valur Þór Hilmarsson
→ Þórey Ómarsdóttir
→ Harpa Björnsdóttir
→ Helena Stefáns Magneudóttir
→ Arnar Ómarsson
→ Hekla Björt Helgadóttir
→ Freyja Reynisdóttir
→ Guðjón Ketilsson
→ Eyjólfur Eyjólfsson
→ Tara Njála Ingvarsdóttir
→ Silfrún Una Guðlaugsdóttir
→ Ásthildur Magnúsdóttir
→ Tumi Árnason
→ Davíð Þór Jónsson
→ Arnar Steinn Friðbjarnarson
→ Margrét Guðbrandsdóttir
→ Brynja Baldursdóttir
→ Andri Freyr Arnarsson
→ Valgerður Dögg Oddudóttir Jónsdóttir
→ Pétur Torfi Guðmundsson

Dagskrá 60 gjörningar á 6 dögum