Lagt var fram tilboð fornleifadeildar Byggðasafns Skagfirðinga vegna uppfærslu fornleifaskráningar í Hólsdal á 794. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar.

Verkefnið tengist fyrirhugaðri veglínu og staðsetningu gangnamunna. Einnig lagður fram viðauki 9 við fjárhagsáætlun 2023 þar sem fjárheimildir 09290-4391 eru auknar um kr. 1.850.000. Viðaukanum verður mætt með lækkun á handbæru fé.

Bæjarráð samþykkti að taka tilboði Byggðasafns Skagfirðinga um skráningu fornminja í Hólsdal vegna mögulegs vegstæðis Fljótaganga og framlagðan viðauka nr. 9.