Á 247. fundi bæjarstjórnar Fjallabyggðar var slökkviliðsstjóra og starfandi verkstjóra Þjónustumiðstöðvar í samvinnu við deildarstjóra tæknideildar falið að skila greinargerð um atburði síðastliðinnar helgar ásamt tillögum að bráðaaðgerðum og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.

Bæjarstjórn fól einnig deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármáladeildar að skila greinargerð fyrir næsta fund bæjarráðs sem haldinn var 30. ágúst, um hver tryggingaleg staða sveitarfélagsins er í ljósi atburðanna.

Með fundarboði bæjarráðs fylgdi samantekt slökkviliðsstjóra og starfandi bæjarverkstjóra ásamt viðaukabeiðni.
Til fundarins mætti Guðmundur M. Ásgrímsson, tryggingaráðgjafi hjá Consello ehf.

Bæjarráð þakkaði Jóhanni K. Jóhannssyni slökkviliðsstjóra og Óðni Frey Rögnvaldssyni starfandi bæjarverkstjóra fyrir samantektina og tillögur úrbótum.

Bæjarráð felur tæknideild að ráðast þegar í stað í eftirfarandi:
· Hreinsa farveg Hvanneyrarár og laga árfarveginn.
· Gera við lagnir og brunna í Hvanneyrarlind
· Setja upp vöktunarbúnað á allar fráveitudælur sbr. minnisblað.
· Leggja fyrir bæjarráð tillögu að kaupum ásamt verði fyrir varadælubúnaði og varaafli fyrir alla dælubrunna.
· Gera tillögu að úrbótum á fráveitu undir Hafnargötu við Snorragötu 2, 6, 10, 12, 14 og 16. Vesturveggur á Snorragötu 6 er illa farinn. Veita þarf vatni sem kemur undan bakkanum greiða leið í sjó fram.
· Mynda allar lagnir á Eyrinni til þess að átta sig á ástandi lagna.
· Að hefja samtal við Ofanflóðasjóð um endurbætur á frágangi ofanvatnslausna við snjóflóðagarða svo ofanvatn frá varnarmannvirkjum endi ekki í fráveitukerfi sveitarfélagsins.
· Að koma læk við Hólaveg 15-17 út úr fráveitukerfinu.
· Að koma læk við á horni Suðurgötu og Hávegar úr fráveitukerfinu.
· Halda áfram með fyrirbyggjandi aðgerðir, sbr. hreinsun á fráveitukerfi sem nú er í fullum gangi.

Bæjarráð samþykkir að útbúin verði viðauki að fjárhæð 30.000.000,- og tekið verði af handbæru fé til fjármögnunar viðaukans. Viðaukinn er til þess að standa straum af búnaðarkaupum að tillögu slökkviliðsstjóra og bæjarverkstjóra.

Bæjarstjóra falið að óska eftir tilboðum í úttekt á fráveitukerfi Fjallabyggðar frá óháðum aðilum með reynslu af sambærilegum verkefnum. Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um hvernig auka má afkastagetu núverandi fráveitukerfis svo koma megi í veg fyrir að atburðir föstudagsins 23.ágúst 2024 endurtaki sig ekki. Innifalið í þeirri vinnu er einnig óskað eftir að til sé aðgerðaráætlun til að bregðast við óvæntum atburðum, s.s. bilunum, stíflum og öðru sem gerir það að verkum að kerfið virkar ekki eins og til er ætlast

Bæjarráð þakkar fulltrúa Consello, Guðmundi M. Ásgrímssyni fyrir komuna á fundinn og fyrir yfirferð á tryggingalegri stöðu sveitarfélagsins. Deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármála falið að vinna málið áfram í samvinnu við Consello í samræmi við umræður á fundinum.

Mynd/Sigríður Oddný Baldursdóttir