Sundlaugin á Dalvík verður lokuð vegna viðhalds frá og með 1. apríl nk. og út júní.
Fyrir lá erindi frá íþróttafulltrúa Dalvíkurbyggðar á 867. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar, þar sem fram kom að í mörg ár hafa Sundlaugar Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar haft með sér það fyrirmyndar samstarf að þegar loka þarf vegna framkvæmda á öðrum hvorum staðnum fá korthafar með gild kort á þeim stað frítt á hinum staðnum.
Í erindi íþróttafulltrúa er lagt til að sveitarfélögin geri með sér ótímabundinn samning um áframhaldandi samstarf á þessum nótum.
Bæjarráð samþykkti að veita korthöfum í sundlaug Dalvíkurbyggðar frítt í sund í sundlaugum Fjallabyggðar á meðan framkvæmdum stendur í sumar og felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmáladeildar að ganga frá ótímabundnum samningi um áframhaldandi samstarf á þeim nótum.
Sundlaug Dalvíkur lokar tímabundið
Mynd/ Vilmundur Ægir Eðvarðsson