Ferðaþjónustuaðilar í Fjallabyggð komu saman á Sigló Hótel í gær þar sem nýr ferðaklasi var stofnaður. Með fundinum var lagður grunnur að auknu samstarfi og samstilltu átaki ferðaþjónustuaðila.
Á fundinum voru kynntar niðurstöður úr kynningarfundum sem áður höfðu verið haldnir á Ólafsfirði og Siglufirði, þar sem áhugi og vilji til aukins samstarfs kom skýrt fram, að því er fram kemur í tilkynningu frá Fjallabyggð. Fundarmenn áttu í framhaldinu samtal um framtíðarsýn og fyrstu verkefni klasans.
Kosið var um nafn á nýjum klasa og varð niðurstaðan sú að hann hlaut nafnið Fjalladýrð, sem vísar til þeirrar einstöku náttúru og umgjörðar sem einkennir Fjallabyggð. Á fundinum var jafnframt kosin stjórn skipuð sjö aðalmönnum og tveimur varamönnum. Ný stjórn mun vinna áfram að mótun samþykkta og útfærslu á fyrirkomulagi aðildar og félagsgjalda.
Í bæjarráði hefur jafnframt verið samþykkt aðkoma Fjallabyggðar að verkefninu með fjárframlagi, að því gefnu að tilskilinn fjöldi félaga náist. Sú ákvörðun undirstrikar mikilvægi samstarfsins og stuðning sveitarfélagsins við eflingu ferðaþjónustu á svæðinu.
Með stofnun Fjalladýrðar er lagður grunnur að öflugu samstarfi sem miðar að því að styrkja ferðaþjónustu í Fjallabyggð, auka sýnileika svæðisins og skapa sameiginleg tækifæri til vaxtar og þróunar.
Myndir: fjallabyggd.is






