Fjarðarhjólið verður haldið laugardaginn 7. september á Ólafsfirði.

Fjarðarhjólið er rafhjólakeppni í krefjandi braut auk þess sem í boði er skemmtihjól sem allir geta tekið þátt í óháð hvernig hjól eru notuð.

Eins og venja er með Fjarðargönguna þá verður fyrst og fremst hrikalega gaman hjá okkur í Fjarðarhjólinu.

Flott umgjörð, tónlist, drykkjarstöð, tvö viðgerðarsvæði, veitingar eftir keppni, úrdráttarverðlaun, allir fá þátttöku verðlaun,  en fyrst og fremst höfum við gaman!

Hér má sjá brautina fyrir Rafhjólakeppnina
Hér má sjá brautina fyrir Skemmtihjólið

Nánari upplýsingar: HÉR

Mynd/Fjarðarhjólið