Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki til verkefna sem miða að því að efla farsæld barna. Styrkirnir eru hluti af aðgerðum stjórnvalda í áætlun vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum. Því er sérstök áhersla lögð á verkefni sem er ætlað að sporna gegn ofbeldi meðal barna.

Styrkirnir eru veittir til verkefna sem stuðla að bættri þjónustu og velferð barna, þar á meðal á sviði frístundastarfs, forvarna, samfélagslegrar virkni og ráðgjafar og stuðnings við börn og fjölskyldur þeirra. Sveitarfélög eru sérstaklega hvött til þess að vinna verkefnin í samstarfi við önnur sveitarfélög, stofnanir, félagasamtök og/eða íþróttafélög. Heildarúthlutun er allt að 495 m.kr..

Nánar er hægt að kynna sér reglur um styrkveitingar mennta- og barnamálaráðherra.

Sótt er um styrk á Mínum síðum á vef Stjórnarráðsins undir mennta- og barnamálaráðuneytinu. Einungis er tekið við rafrænum umsóknum.

Hægt er að nálgast ítarlegri leiðbeiningar um notkun á Mínum síðum hér.

Umsókn skal fylgja greinargóð lýsing á verkefninu, áætlun um framkvæmd þess, hvernig sveitarfélagið hyggst halda áfram með verkefnið að styrkjatímabili loknu og hvernig sveitarfélagið sér fram á að mæla árangur verkefnisins. Vakin er athygli á því að ráðuneytið áskilur sér rétt til að óska eftir frekari upplýsingum, þar á meðal um faglega hæfni og rekstrargrundvöll verkefnis, í samræmi við leiðbeiningar ráðuneytisins.

Nánari upplýsingar má fá með því að senda fyrirspurn á netfangið mrn@mrn.is. Umsóknarfrestur er til og með 30. júní 2025. Áætlað er að úthlutun fari fram eigi síðar en í ágúst 2025.

Mynd/aðsend