Hverfisgata

Hlynur Jónsson Arndal.

Hlynur Jónsson Arndal er ættaður úr Fljótunum og bjó á Hávegi 24, Siglufirði frá fimm ára aldri en flutti suður ellefu ára gamall árið 1968. Hann kom afar sjaldan til Siglufjarðar eftir það enda átti hann enga ættingja eftir að afi hans og amma létust.

Á fullorðinsárum gerðist hann fjármálastjóri hjá SR og átti hann þá oft erindi til Siglufjarðar og síðan var það árið 2001 að hann keypti Hverfisgötu 21.

Foreldrar Hlyns voru þau Jón Finnbogason Arndal frá Hafnarfirði og  Margrét Jóhannsdóttir sem var dóttir Jóhanns Guðmundssonar bónda á Þrasastöðum. Þau fluttu til Siglufjarðar um 1935 þegar afi hans þurfti að hætta búskap vegna heymæði eða skylds lungnasjúkdóms, kona hans var Sigríður Gísladóttir frá Ljótstöðum í Skagafirði, Hartmann Guðmundsson tók þá við Þrasastöðum.

Jóhann var síðan verkmaður hjá Síldarverksmiðjum Ríkisins. Þær voru alls 3 systurnar á Siglufirði með móður Hlyns, Gyða Jóhannsdóttir og Ástrún Jóhannsdóttir auk þess var Einar Jóhannsson ennþá viðloðandi Siglufjörð en hann nam vélsmíði á verkstæði SR og varð síðan vélstjóri. Gísli Jóhannsson  bróðir þeirra flutti líka  með, en hann var fluttur frá Siglufirði þegar fjölskyldan flutti þangað 1962 og var skrifstofustjóri hjá Síldarútvegsnefnd. Gyða var gift Sigurði Jónssyni sem  var einn af forstjórum Síldarverksmiðjanna og maður Ástrúnar var verkstjóri yfir frystihúsi SR.

 

Hverfisgata

Svona leit Hverfisgata 21 út árið 2001 þegar hjónin keyptu það.

 

Tveir bræður afa Hlyns bjuggu á þessum tíma líka á Siglufirði, Eiríkur Guðmundsson sem sá um mikið af framkvæmdum á vegum bæjarins og Þorvaldur Guðmundsson sem áður var bóndi á Deplum.  Móðurætt Margrétar (móður Hlyns) frá Ljótstöðum bjó líka á Siglufirði og niðjar þeirra.

Í kringum árið 2000 stóð til að fjölskyldan fjárfesti í sumarbústað en eftir tíðar ferðir Hlyns norður var ákveðið að festa frekar kaup á húseign á Siglufirði enda miklu meiri afþreying í boði heldur en að sötra rauðvín í sveitinni eins og Hlynur komst að orði.

 

Hverfisgata

Svona leit húsið að Hverfisfötu 21 út nýbyggt.

 

Miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsinu við Hverfisgötu 21 frá því að þau hjónin Hlynur og Auður Eyjólfsdóttir eignuðust það og er húsið einkar fallegt og mikill bæjarsómi.

Það er enn verið að vinna að endurbótum innanhúss. Var það nú í vor þegar verið var að rífa vegg og opna á milli stofu og eldhúss á miðhæð hússins þegar Siglfirðingurinn Gestur Hansson var að aðstoða Hlyn og fann peningaseðil inni í veggnum. Seðillinn var sem nýr og hefur hugsanlega verið skilin eftir í veggnum þegar húsið var byggt 1929. Seðillinn er frá þeim tíma og hefur verið ígildi 4 klst. kaups verkamanns miðað við kauptaxta 1930 sem var kr. 1.20.

 

Hverfisgata

Fimm krónu seðillinn sem Gestur Hansson fann á milli þilja í vor.

 

Hverfisgata

Ígildi 4 klst. kaups verkamanns miðað við kauptaxta 1930 sem var kr. 1.20.

 

Það hafa margir búið í húsinu að Hverfisgötu 21 og kann húsið eflaust margar sögur sem eru ósagðar, en hér má sjá skjal sem Hlynur á um íbúaskrá hússins frá því að Jakob Magnússon flutti inn það herrans ár 1929: Hverfisgata 21 íbúaskrá

Þau hjónin hafa lagt mikla alúð í að halda upphaflega byggingarstílnum við og allar endurbætur tekist einstaklega vel og húsið hin mesta bæjarprýði. Hér má sjá myndir sem Hlynur hefur haldið saman frá endurbótum hússins: Sjá myndir

 

Myndir: Hlynur Jónsson Arndal.