Bæjarráð Akureyrar hefur úthlutað styrkjum til fjölbreyttra verkefna í tengslum við Barnamenningarhátíð á Akureyri. Alls hlutu 14 verkefni brautargengi.
Auk þess eru verkefnin Hæfileikakeppni Akureyrar og Sumartónar í Hofi orðin af föstum liðum á hátíðinni
Allur aprílmánuður verður helgaður hátíðinni og eru einstaklingar, hópar, fyrirtæki og stofnanir hvött til almennrar þátttöku. Áhugasömum er bent á nánari upplýsingar á barnamenning.is. Opið er fyrir umsóknir um almenna þátttöku í Barnamenningarhátíð á Akureyri til og með 5. mars.
Styrkt verkefni hátíðarinnar í ár eru:
- Fiðrildi, býflugur og þrír kenjóttir kettir / Flautukórinn Ciuf Ciud
- Lítil saga úr orgelhúsi / Listvinafélag Akureyrarkirkju
- Ofurhetjuperl – sýning og smiðja / Snorri Valdemar Sveinsson
- Silent disco fyrir 8.-10. bekk / Amtsbókasafnið á Akureyri
- Lifandi mósaík verk í andyri Amtsbókasafnsins / Amtsbókasafnið á Akureyri
- Heimur og haf / Leikskólinn Kiðagil, deildirnar Engjarós og Smári
- Tónatal / Elsa María Guðmundsdóttir
- Myndlistarverkstæði Gilfélagsins 2023 / Gilfélagið
- Blásarafjör! / Blásarasveitir Tónlistarskólans á Akureyri
- Barnaleikir fyrr og nú / Heilsuvernd Hjúkrunarheimili
- Skringill og Bríet – Vorið kemur! / Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir
- Teiknimyndagerð / Félagsmiðstöðvar Akureyrar
- Þjóðsögur 21. aldar / Markús Már Efraím Sigurðsson
- Leikur í list – Listasmiðjur fyrir leikskólabörn / Listasafnið á Akureyri
Verkefni og dagskrá hátíðarinnar verða nánar kynnt síðar.