Skemmtileg dagskrá verður í Glaumbæ í Skagafirði fyrir börn og aðstandendur þeirra í vetrarfríinu fimmtudaginn 19. febrúar, frá kl. 12:00 -16:00.

Fjölskyldur eru hvattar til að koma á safnið og hafa gaman saman.

  • Leiðsögn um gamla bæinn kl. 13:00 og kl. 15:00.
  • Bingóspjald Byggðasafnsins, verðlaun í boði fyrir eina röð eða heilt spjald.

Rjúkandi heitt kakó og gómsætar veitingar verða á boðstólnum í Áshúsi.

Ókeypis aðgangur á safnið fyrir fullorðna í fylgd með börnum.

Mynd: af vefsíðu Skagafjarðar