Á morgun Þriðjudaginn 20. október hefst valvika fyrir vorönn 2021 í Menntaskólanum á Tröllaskaga.

Þá velja allir nemendur skólans sér áfanga fyrir komandi önn. Áfangaframboð má finna á vef skólans þar sem jafnframt eru áfangalýsingar.

Auglýsingar frá kennurum vegna áfanga má sjá á Padlet-vegg. Nemendur eru beðnir að hafa samband við umsjónarkennara sína vegna valsins.

Mikilvægt er að velja í valvikunni til að tryggja sér pláss í áföngum. Opnað verður fyrir innritun nýrra nemenda 1. nóvember.



Mynd/MTR