Í dag föstudaginn 15. nóvember verður ný viðlega skipa, Austurgarður við Dalvíkurhöfn, vígður við hátíðlega athöfn.
Frá klukkan 16.00 verður hægt að kynna sér framkvæmdir og einnig gefst gestum kostur á að skoða nýtt og glæsilegt frystihús Samherja hf.

Formleg dagskrá hefst kl.16:15
Til máls taka:
Katrín Sigurjónsdóttir, hafnarstjóri.
Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála.

Að lokum verður mannvirkið blessað af séra Jónínu Ólafsdóttur, presti í Dalvíkurprestakalli.

Allir hvattir til þess að mæta!

Mynd: Haukur Arnar Gunnarsson