Fórnarlamba umferðarslysa var minnst í Fjallabyggð í fallegri athöfn neðan við Siglufjarðarkirkju í gær.

Allir viðbragðsaðilar komu þar saman og stóðu heiðursvörð þegar þeirra sem látist hafa í umferðinni var minnst.

Anna Hulda Júlíusdóttir hélt ávarp og Eva Karlotta flutti einkennislag þessa dags, When I think of angels eftir KK.

Myndir og heimild/Slökkvilið Fjallabyggðar