Á 632. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar var lagt fram erindi Kristjáns Haukssonar, þar sem óskað var eftir samþykki sveitarfélagsins fyrir því að setja niður 6 – 7 holu fótboltagolfvöll á túni við Tjarnarstíg og inn á íþróttasvæði KF og hluta lóðar MTR, að höfðu samráði við stjórn KF og skólameistara MTR. Eða á svæðið norðan Ólafsvegar „Frímerkið“.

Á 633. fundi bæjarráðs óskaði ráðið eftir umsögn deildarstjóra tæknideildar vegna erindis Kristjáns Haukssonar.

Bæjarráð samþykkti að veita heimild fyrir fótboltagolfvelli á túni við Tjarnarstíg og á íþróttasvæði KF að höfðu samráði við deildarstjóra tæknideildar og KF.