Aldrei hafa afla­heim­ild­ir og afli strand­veiðibáta verið meiri en það sem er af sumri.

Afli í þorski nálg­ast út­gefið afla­há­mark og í síðustu viku vakti Fiski­stofa at­hygli á að lítið væri eft­ir af heim­ild­um í þorski, 557 tonn. Fiski­stofa skal stöðva strand­veiðar þegar sýnt er að leyfi­leg­um heild­arafla verði náð.

Nú hefur sveitarfélagið Skagaströnd skorað á sjávarútvegsráðherra að grípa til aðgerða til þess að tryggja öllum strandveiðibátum, tólf leyfilega veiðidaga í ágúst.

Í bókun sveitafélags Skagastrandar segir að fyrirséð sé að heildarafli sem ætlaður hafi verið til strandveiða muni klárast á næstu dögum með þeim afleiðingum að veiðar fjölda báta um allt land stöðvist.

Slíkt hafi neikvæð áhrif á tekjur fólks, fyrirtækja og sveitarfélaga vítt og breytt um landið. Á sama tíma séu stjórnvöld að keppast við, með beinum og óbeinum aðgerðum, að halda hjólum atvinnulífsins gangandi á tímum heimsfaraldurs COVID-19.