Starfshópur innviðaráðherra um mótun borgarstefnu hefur skilað skýrslu með tillögum að fyrstu borgarstefnu fyrir Ísland. Þar er lagður grunnur að lykilviðfangsefnum og framtíðarsýn fyrir tvö borgarsvæði; Reykjavík, höfuðborgarsvæðið og áhrifasvæði þess annars vegar og Akureyri og áhrifasvæði hins vegar. Verkefnið er hluti af aðgerðaáætlun gildandi byggðaáætlunar (aðgerð C.4. Borgarstefna).
Svandís Svavarsdóttir, innviðaráðherra hyggst leggja fram tillögu til þingsályktunar um borgarstefnu á Alþingi á komandi haustþingi.
Markmið borgarstefnu er að styrkja stöðu Íslands í harðnandi alþjóðlegri samkeppni um fólk og fyrirtæki og stuðla að samspili þéttbýlis og dreifbýlis til uppbyggingar sjálfbærra byggðarlaga. Í því felst m.a. að styrkja höfuðborgarhlutverk Reykjavíkur, höfuðborgarsvæðið og áhrifasvæði þess annars vegar. Hins vegar að festa Akureyri í sessi sem svæðisborg og skilgreina og efla hlutverk hennar og áhrifasvæði.
Fimm lykilviðfangsefni kynnt
Drög að borgarstefnu taka til fimm lykilviðfangsefna sem stuðla að því að framtíðarsýn hennar verði að veruleika:
- Loftslagsmál. Áhersla á aðlögun að loftslagsbreytingum og forystuhlutverk borgarsvæðanna í því samhengi.
- Móttaka innflytjenda. Áhersla á inngildandi borgarsamfélög með auknu samstarfi og samþættingu í þjónustu. Fjölgun erlendra sérfræðinga og sérhæfðs starfsfólks.
- Innviðir. Áhersla á skipulag og uppbyggingu innviða sem stuðla að sjálfbærum borgarsamfélögum sem eru eftirsótt til búsetu og atvinnu og skapi umgjörð fyrir efnahagslega drifkrafta og nýsköpun.
- Samfélag. Áhersla á hlutverk borgarsvæðanna varðandi menntun, menningu og heilbrigðis- og félagsþjónustu.
- Atvinnulíf, fjárfestingar og nýsköpun. Áhersla á alþjóðlega samkeppnishæft umhverfi fyrir atvinnulíf og öflugt nýsköpunarumhverfi sem laðar að þekkingu og fjárfestingar.
Nánar um starfshópinn
Í lok árs 2022 var skipaður starfshópur um mótun borgarstefnu á grundvelli aðgerðarinnar og hefur hópurinn unnið drög að borgarstefnu. Í starfshópnum áttu sæti Ingvar Sverrisson, framkvæmdastjóri Aton og formaður hópsins, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, framkvæmdastjóri SSNE, Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fv. borgarstjóri í Reykjavík, Gunnar Már Gunnarsson, bæjarfulltrúi á Akureyri, Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi í Reykjavík, og Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH.
Með hópnum störfuðu Jóhanna Sigurjónsdóttir, sérfræðingur í innviðaráðuneytinu, Ásdís Sigurbergsdóttir, ráðgjafi hjá Aton, og Reinhard Reynisson, sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar. Óli Örn Eiríksson, teymisstjóri atvinnu- og borgarþróunarteymis hjá Reykjavíkurborg, og Hulda Sif Hermannsdóttir, aðstoðarmaður bæjarstjóra á Akureyri, störfuðu með og sóttu fundi starfshópsins í fjarveru borgarstjóra og bæjarstjóra.