Húnaþing vestra vill benda íbúum sem eiga rétt á frístundakortum sveitarfélagsins að nýta sér þau.

Upphæð kortsins er 25.000 kr.

Gefin hafa verið út frístundakort vegna ársins 2024 fyrir börn á aldrinum 6-18 ára sem lögheimili eiga í Húnaþingi vestra. Foreldrar/forráðamenn þurfa að sækja kortin á skrifstofu Húnaþings vestra að Hvammstangabraut 5, Hvammstanga og kvitta fyrir móttöku þeirra. Þeir sem vilja nýta kortið sem innborgun á tónlistarskólagjöld geta sent tölvupóst þess efnis á netfangið: skrifstofa@hunathing.is

Athugið að frístundakortin renna út 15. desember ár hvert og því er æskilegt að búið sé að ráðstafa frístundakortunum fyrir 10. desember 2024.

Foreldri/forráðamaður þarf að framvísa persónuskilríki til að fá kortið afhent. Skila þarf inn skriflegu umboði ef afhenda á kortið öðrum en foreldri/forráðamanni. Reglur um notkun frístundakortanna má finna hér.

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Húnaþings vestra í síma 455-2400.