Tilkynningum sem berast Matvælastofnun um dauða og veika villta fugla hefur fækkað. Fuglainflúensa hefur ekki greinst í þeim sýnum úr fuglum sem rannsökuð hafa verið síðustu daga. Aftur á móti greindist fuglainflúensa H5N5 í sýni sem tekið var úr refi í Skagafirði í þessari viku.
Matvælastofnun telur ekki tímabært að álykta að sýking í villtum fuglum sé í rénun og biður fólk að vera áfram vakandi fyrir sjúkdómseinkennum í fuglum og að tilkynna stofnuninni um veika og dauða fugla sem það sér.
Í gær bárust Matvælastofnun niðurstöður rannsókna Tilraunastöðvar HÍ að Keldum á sýnum sem tekin voru úr refi sem aflífaður var í Skagafirði fyrr í vikunni. Íbúi sá refinn og tók eftir að hann var augljóslega veikur; mjög slappur, hreyfði sig lítið og var valtur á fótunum. Tilkynnt var um refinn til Matvælastofnunar, reyndar refaskyttur voru fengnar til að aflífa hann, hræið sent til rannsókna á Keldum og greindist hann með fuglainflúensu af gerðinni H5N5. Í ljósi þessa vill Matvælastofnun biðja fólk að vera líka vakandi fyrir sjúkdómseinkennum eða óeðlilegri hegðun í refum og senda stofnuninni tilkynningu ef það verður vart við veika eða dauða refi.
Rétt er að benda á að fleiri spendýr, svo sem rottur og mýs, geta líka smitast af fuglainflúensu, þótt veiran hafi ekki greinst hingað til í þessum dýrategundum hér á landi. Því miður kemur fyrir að fólk tekur mýs og heldur þær í búrum innanhúss. Matvælastofnun vill benda á að það er varasamt vegna smithættu, auk þess sem það er óheimilt samkvæmt lögum um velferð dýra og það sama á við um öll önnur villt dýr. Ef vart verður við óeðlilegan dauða í músum og rottum skal það tilkynnt til Matvælastofnunar.
Skilaboð til katta- og hundaeigenda eru að smithætta er enn til staðar og því æskilegt að þeir reyni áfram að koma í veg fyrir að dýr þeirra fari í veika eða dauða villta fugla eða spendýr.
Tilkynna skal um veik eða dauð villt spendýr og fugla til Matvælastofnunar með því að smella á hnappinn „ábendingar og fyrirspurnir“ efst á heimasíðu stofnunarinnar (www.mast.is). Mikilvægt er að tilkynningunni fylgi nákvæmar upplýsingar um staðsetningu og best er að skrá hnit staðarins. Nauðsynlegt er að taka fram hvaða fugla- eða dýrategund er um að ræða og/eða láta mynd fylgja með tilkynningunni.
Minnt er á mælaborð um fuglainflúensu á heimasíðu Matvælastofnunar. Mælaborðið hefur verið uppfært og má þar nú finna upplýsingar um allar tilkynningar auk upplýsinga um sýnatökur og niðurstöður rannsókna eins og áður.
Ítarefni
Upplýsingasíða Matvælastofnunar um fuglainflúensu
Mynd/MAST