Siglufjörður hefur ætíð verið þekktur fyrir sitt frábæra bæjarskipulag sem Séra Bjarni Þorsteinsson er upphafsmaður af.
Maður sér metnað og framtíðartrú í stóru torgi og Aðalgötu með risastórri kirkju í öðrum endanum.
Einhverskonar “Manhattan” götuskipulag einkennir eyrina og skapar einstaklega skemmtilega stemmingu með alvöru miðbæ, sem er eitthvað sem ekki er til í mörgum öðrum bæjarfélögum af svipaðri stærðargráðu.
En á eyrinni eru líka hús sem pössuðu ekki alveg inn í þessa heildarmynd og standa á ská við götuna eða á milli gatna. Líklega vegna þess að þau stóðu þarna áður en Séra Bjarni tók málið í sínar hendur.
Þessi greinarsería fjallar nú reyndar ekki svo mikið um skipulagið á eyrinni, heldur meira um furðulegar götur sem eru í tveimur og þremur hlutum upp í fjalli, byrja, slitna og byrja aftur og það er ekkert einfalt fyrir ókunnuga að finna þessar slitnu götur.
En Siglfirðingar kunna þetta og það er ákveðinn sjarmi yfir þessari “gatnamála vitleysu”.
Greinarhöfundur ætlaði upphaflega að skeppa í stuttan ljósmyndatúr og var þá aðallega með Háveg, Hverfisgötuna og Hvanneyrabrautina í huga en þetta varð strax miklu meira og þess vegna verður þetta birt í nokkrum hlutum.
Þessi furðulegheit byrjuðu strax í götunni þar sem æskuheimilið mitt stendur og síðan magnaðist þetta eftir sem leið á daginn og auðvitað hitti maður marga fróða og spjallglaða Siglfirðinga sem bentum mér á fleiri einkennilegar götur og hús.
Ég klíf út um dyrnar hjá móður minni á Hafnartúni 6. Hafnartúnið byrjar nefnilega í annarri götu sem heitir Hafnargata.
Yfirleitt byrja götur á gatnamótum, en ekki þessi.
Hafnartún – Hafnargata
Syðstu þrjár göturnar í bænum heita NORÐURTÚN.
Ástæðan fyrir því að syðstu göturnar í bænum heita Norðurtún er gamalt bæjarskipulag sem hætt var við vegna snjóflóðahættu. Fyrir sunnan Norðurtúnið átti að byggja bæði Miðtún og Suðurtún.
Hávegurinn er í þremur hlutum.
Nú liggur leiðinn upp Norðurtún og svo beygjum við norður Suðurgötuna og eftir stutta stund komum við að gatnamótum við “Ömmuhús” og þar keyrir maður upp í þriðja og syðsta hluta Hávegsins.
Svo að þið sem kannski eruð búinn að gleyma staðarháttum hér á Sigló áttið ykkur betur á þessum furðulegheitum þá lánum við mynd frá “Kortasjá Fjallabyggðar“.
Eins og sjá má á myndinni hér neðar þá endar gatan upp í miðju fjalli fyrir bæði gangandi sem og biðreiðar.
Til þess að komast upp á “miðju hlutann” af Háveginum verður maður að snúa við og fara aftur niður á Suðurgötu og síðan beygja upp Hverfisgötuna smá stund og síðan aftur til vinstri og upp stutta brekku.
Mið Hávegurinn endar líka uppí fjalli og maður sér í fyrsta hlutann og það er næstum ómögulegt fyrir aðkomufólk að skilja hvernig maður kemst þangað.
Myndin hér fyrir ofan er úr greinaflokki sem birtist á siglo.is í fyrra þar ég minnist barnæsku minnar á þessum götum.
Sjá alla greinina hér: GÖNGUTÚR UM HEIMAHAGA. 3 hluti, ÖMMUR
“Ég ætla upp í fjárhús og tala við lömbin sem eiga engar mömmur hugsa ég og í leiðinni þá kem ég við hjá Stínu ömmu minni á Túninu og fæ hjá henni smákökur og mjólk og kannski eina tvær auka kökur í vasann fyrir lömbin.
Þetta furðulega hús stendur þarna á miðju túni, það er stendur ekki við neina götu og það er enginn vegur að þessu húsi…….furðulegt og það eru margar skrítnar götur þarna í sjónmáli, enda bara upp í miðju fjalli og byrja svo aftur einhverstaðar annar staðar upp á brekku eða norður í bæ…………hver hugsaði þetta eiginlega…..hverskonar vitleysa er þetta eiginlega.
Var skortur á götunöfnum eða var þetta eitthvað sem tilheyrði glæsilegum framtíðarplönum sem var búið að framkvæma á eyrinni fyrir löngu, löngu síðan. Hmm…..skrítið.
Geng í blautu grasinu á túninu og fæ mér hundasúru að bíta í og ég sé að Stína og dóttir hennar eru fyrir utan húsið. Mér fannst þær alltaf svo sætar þegar þær gengu þétt saman um bæinn, dóttirin leiddi aldraða móður sína eða leiddi Stína hana vegna þess að dóttirin var með sterk og þykk gleraugu? Veit það ekki…..en ég var með það á hreinu að þetta væru góðar konur.”
Og nú kemur það allra flóknasta…….hvernig kemst maður upp á fyrsta hluta Hávegsins.
Við verðum að lána Kortasjá mynd frá bænum aftur til þessa að sjá þetta betur.
Jú…sko, maður verður að keyra upp á Lindargötu og síðan upp Kirkjugarðsveg og þar á eftir inn á “norðurhluta Hverfisgötunnar”, síðan upp nokkuð bratta “beygju brekku” framhjá Heiðarvegi og þá ertu kominn á byrjunarreit þessarar furðugötu.
Hér áður fyrr komst maður hingað með því að fara upp allan Kirkjugarðveginn sem í dag er að hluta til göngustígur eða svo fór maður upp götu sem heitir Skriðustígur en við þá götu standa enginn hús, þrátt fyrir að þú kemst bara að húsunum þar en þau eru öll skrifuð á Lindargötuna, Hverfisgötuna og Háveg.
En við skulum ræða meira um Hverfisgötuna og fleiri skrítnar götur bæjarins í næsta kafla.
Slóð á:
Furðulegar götur 2 Hluti.
Furðulegar götur 3 hluti
FURÐULEGAR GÖTUR 4 HLUTI – HÚS
Lifið Heil.
Kær kveðja
Nonni Björgvins
Texti og ljósmyndir:
Jón Ólafur Björgvinsson